um fundarstjórn.
Frú forseti. Hérna einu sinni var efling Alþingis eitthvað sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur stefndi að, en það er dottið úr tísku í stjórnarliðinu. Mér finnst samt bagalegt ef innviðaráðherra lítur svo á að afsökunarbeiðni vegna rasískra ummæla eigi sér stað í fjölmiðlum og þar með sé málinu lokið gagnvart Alþingi. Hér erum við að tala um virðingu Alþingis. Við erum að tala um mögulegt brot ráðherrans á siðareglum þingmanna og ráðherra og mögulegt lögbrot. Þess vegna er mjög eðlilegt að ráðherrann komi inn í þennan sal og ræði við kollega sína í þessari opnu málstofu sem almenningi gefst kostur á að fylgjast með, ræði hér málið en ekki bara í viðtölum sem hann tekur á sínum forsendum úti í bæ. Mér skildist á málflutningi ráðherrans í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í fyrradag (Forseti hringir.) að hann liti svo á að frumkvæði þyrfti að koma á einhvern hátt frá Alþingi en 61. gr. þingskapalaga (Forseti hringir.) lítur út á hinn veginn, þannig að ég velti fyrir mér hvort það séu einhverjir samskiptaörðugleikar að eiga sér stað (Forseti hringir.) þarna á milli ráðherra og þings og hvort við þurfum einhvern veginn að liðka fyrir á milli forseta og ráðherra. — Afsakið.
(Forseti (OH): Áður en lengra er haldið vill forseti minna á að ræðutíminn í fundarstjórn forseta er ein mínúta.)