152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[15:47]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég á einmitt í smá erfiðleikum með þetta mál af því að það er í rauninni ákveðinn orðrómur um hvað var nákvæmlega sagt. Nú ætla ég ekki að efast um neitt hjá neinum hvað það varðar en það er búið að biðjast afsökunar og ég veit ekki á nákvæmlega hverju, af því að hæstv. innviðaráðherra neitar að endurtaka þau ummæli. Þá veit maður ekki hvað maður er að fyrirgefa eða afsaka. Ég myndi alla vega telja miðað við afsökunarbeiðnina að það væri tilefni til að biðjast afsökunar á einhverju, en ég veit ekki hvernig ég á að taka afsökunarbeiðninni. Við erum nú einu sinni að tala um ráðherra og við erum að tala um lög um jafna meðferð miðað við kynþátt og mjög alvarleg lög sem voru sett af þessari ríkisstjórn. Mér fyndist eðlilegt að ráðherra kæmi einfaldlega hérna, (Forseti hringir.) gerði grein fyrir máli sínu og á hverju nákvæmlega hann er að biðjast afsökunar.