um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég ætla að taka undir það sem menn eru að árétta hér frá því í umræðum fyrr í vikunni um að hæstv. innviðaráðherra komi hingað, formaður Framsóknarflokksins, og geri betur grein fyrir þessu máli. Eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson kom inn á gætum við, eða mér finnst það nokkuð líklegt, verið að tala um að þarna sé um brot á siðareglum að ræða, þingmanna og ráðherra, og ekki ólíklegt að þarna sé líka um brot á almennum lögum að ræða. Ástæðan fyrir því að það er heppilegt að gera þetta hér í þessum þingsal er að við erum öll sammála um að þetta eru ummæli sem ekki eiga að líðast. Við erum líka sammála um að það þurfi að koma skýr skilaboð bæði frá löggjafanum og framkvæmdarvaldinu um að þetta líðist ekki og það er enginn staður betri til þess heldur en ræðustóll Alþingis. Þannig að mér finnst brýnt að þessi staðsetning og þessi staður sé valinn fyrir þetta. Þess utan er staðan enn þá sú að hæstv. ráðherrann segist hafa sagt eitthvað sem hann útskýrir ekki hvað er en aðstoðarmaður hæstv. ráðherra heldur því fram að ekkert sérstakt (Forseti hringir.) hafi verið sagt og hefur meira að segja ítrekað í fjölmiðlum, þannig að við þurfum að fá botn í þetta mál.