152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[15:50]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég hef áhyggjur. Ég hef áhyggjur af ráðaleysi Alþingis þegar kemur að augljósum brotum á siðareglum sem við höfum sett okkur og þingmenn undirgengist með undirritun sinni. Við verðum að virða þær og við verðum líka að hafa leiðir til að taka á því þegar hv. þingmenn, hæstv. ráðherrar, virða ekki siðareglurnar eða beinlínis brjóta þær. Það eru til fordæmi fyrir því að forseti hafi sjálfur beitt sér eftir að svokallað Klaustursmál kom upp á síðasta kjörtímabili. Það er hægt. Við verðum að fá það á hreint hjá forseta og forsætisnefnd hvernig hún hyggist beita sér, af því það er í rauninni í höndum forseta að sjá til þess að menn undirgangist siðareglurnar. Það er hið félagslega taumhald sem við höfum hér og við þurfum að geta beitt því.