152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[15:51]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Frú forseti. Ég vil taka undir það sem hér hefur verið sagt er varðar frumkvæðið að því að ráðherra komi hingað til að gefa yfirlýsingar á grundvelli 61. gr. laga um þingsköp Alþingis. Það virðist vera einhver misskilningur þar. Lögin virðast gera ráð fyrir því að frumkvæðið komi frá hæstv. ráðherra en hæstv. ráðherra hefur kallað eftir því að þingið fari fram á það með formlegum hætti. Ég veit ekki hversu mikið formlegri hátt við getum haft á en við höfum gert nú þegar. Við höfum óskað eftir því að hæstv. ráðherra komi hingað og ræði þetta við okkur. Við óskuðum sömuleiðis eftir því að hæstv. ráðherra kæmi hingað til að sitja undir svörum undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir en það var ekki gengist við því. Það er í tísku núna, held ég, hjá einhverjum PR-fulltrúum í þessu samfélagi að ráðleggja fólki sem hefur orðið uppvíst að ósæmilegri háttsemi að þegja og bíða hlutina af sér. Ég tel það ekki vera réttu ráðgjöfina til hæstv. ráðherra í þessu tilviki.