um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Mér finnst þetta hundleiðinlegt mál en ég held að það væri virðingarleysi við fólk af erlendum uppruna og samfélagið allt í rauninni ef þetta yrði ekki gert upp með einhverjum hætti hér í þingsal. Ég vil minna á, eins og hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir kom inn á, að þegar þingmenn urðu uppvísir að óviðurkvæmilegum ummælum á Klaustri hér fyrir örfáum árum fann forseti Alþingis sig knúinn til að lesa upp yfirlýsingu og svoleiðis lesa þingheimi pistilinn. Hæstv. ráðherra var í þingsal í gær og átti orðastað við okkur um fjármálaáætlun og ég verð að viðurkenna að mér fannst að hálfankannalegt að eiga orðastað við ráðherra meðan þetta mál hefur ekki verið gert upp í þessum sal. Ef frumkvæðið kemur ekki frá ráðherra þá biðla ég til forseta að eiga frumkvæði að því (Forseti hringir.) að fá ráðherra til að koma hingað upp og lesa upp yfirlýsingu (Forseti hringir.) og að umræða eigi sér stað hér. Ég hvet líka og biðla til þingmanna (Forseti hringir.) Framsóknarflokksins og Vinstri grænna um að styðja okkur í þessu máli, og einnig Sjálfstæðisflokksins.