um fundarstjórn.
Forseti. Að einhverju leyti skil ég að hæstv. innviðaráðherra vilji ekki endurtaka það sem hann biðst afsökunar á. En það er líka til að gefa skilaboð um hvað er ekki í lagi. Það er hluti af ábyrgð okkar og ábyrgð ráðherra að segja: Ég er að biðjast afsökunar af því að þetta er ekki í lagi. Það er ekki neitt sem neinn á að skammast sín fyrir. Það er búið að viðurkenna að þetta sé ekki í lagi og það á bara að leggja það á borðið. Við vinnum þannig á Alþingi. Við reynum að vera eins opin og gagnsæ og við getum hérna í beinni útsendingu í ræðustól Alþingis. Þetta væru, held ég, rosalega holl skilaboð um hvað stefnan sem lögin um að mismuna ekki eftir kynþætti og uppruna snúast um. Ég kalla eftir því að hæstv. innviðaráðherra komi og segi bara (Forseti hringir.) beint út: Þetta er ekki í lagi, við skulum ekki gera svona aftur.