um fundarstjórn.
Frú forseti. Sé það staðan að ósk frá hæstv. ráðherra hafi ekki borist þinginu þá eru það auðvitað sjálfstæð tíðindi. Í því felst að hæstv. ráðherra ætlar sér ekki að eiga samtal um þetta mál hér á Alþingi. Ég tel rétt að upplýst verði um það hvort ráðherra hafi óskað eftir því að koma og gefa þessa skýrslu eða ekki. Við erum með siðareglur fyrir alþingismenn. Við erum með nefnd sem tekur á málum um siðareglur. Við erum með eftirlit um framkvæmd þessara reglna. Það eru verulegar líkur á því, held ég megi segja, að hér sé um að ræða orðaskil og orðaskipti sem falla undir gildissvið siðanefndarinnar. Það skiptir máli að þetta mál sé gert upp á réttum vettvangi en ekki út frá almannatengslum eða því sem spilast í fjölmiðlum. Til þess er þingið.