um fundarstjórn.
Frú forseti. Um síðustu helgi bárust fréttir af rasískum ummælum innviðaráðherra. Um næstu helgi byrjar páskahlé Alþingis sem stendur í tvær vikur, þannig að tíminn til að svara fyrir þessi ummæli hér í sal er í dag og á morgun. Ráðherrann hlýtur að geta staðið reikningsskap orða sinna fyrir framan þing og þjóð á þessum tíma. Hversu mikið formlegri þurfum við að vera þegar við biðjum um ráðherra hér í salinn til að ræða þetta? Það er búið að nefna það á fundi þingflokksformanna við forseta að það sé ólíðandi að ráðherrann mæti í hvorugan fyrirspurnatíma vikunnar og fáheyrt að ráðherra mæti í hvorugan tímann í heila viku. Þeir mæta alltaf í annan. Þar að auki erum við búin að nefna þetta hér úr ræðustól Alþingis núna tvisvar með ansi skýrum hætti. Hvað þurfum við að ganga langt? Þurfum við að leggja fram formlega dagskrártillögu um að þvinga ráðherrann í salinn? Ég hefði ekki haldið að það þyrfti að koma til þess.