152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[15:59]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil ítreka áskorun mína til þingmanna Sjálfstæðisflokksins, þingmanna Vinstri grænna og þingmanna Framsóknarflokksins um að koma hingað upp og aðstoða okkur við að kalla það fram hér að þetta mál sé gert upp á réttum vettvangi. Ég er ekki að biðja þingmenn þessara flokka um að vera með einhverjar traustsyfirlýsingu eða vantraustsyfirlýsingar eða tjá sig efnislega um þetta mál, en ég biðla til þingmanna þessara flokka um að sjá sóma sinn í því að styðja þessa einföldu kröfu um að málið sé gert upp hér á réttum stað. Að við þurfum ekki að halda áfram að eiga orðastað við hæstv. ráðherra án þess að hann hafi gert hreint fyrir sínum dyrum hér í þessum ræðustól.