152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

almannatryggingar.

[16:00]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. félags- og barnamálaráðherra fyrir að eiga við mig þessa þörfu umræðu um almannatryggingar. Mín fyrsta spurning til ráðherra er: Hyggst hæstv. ráðherra leggja til aðgerðir til að leiðrétta uppsafnaða kjaragliðnun öryrkja og ellilífeyrisþega þegar farið verður í þá heildarendurskoðun á almannatryggingakerfinu sem ríkisstjórnin hefur boðað? Ég vona svo sannarlega að svarið verði já, en ég hef verulegar áhyggjur af því að ekki standi til að brúa bilið milli lífeyrisþega, almannatrygginga og launa á vinnumarkaði. Hæstv. fjármálaráðherra hefur gefið það til kynna að hann telji ekki þörf á auknum fjárveitingum til endurskoðunar almannatryggingakerfisins og fjármálaáætlun sú sem hefur verið til umfjöllunar þessa vikuna boðar engar breytingar í þeim efnum. Á sama tíma mælist verðbólgan 6,7% en ríkið telur ekki þörf á nema 2,5% aukningu í þessum málaflokki á ári hverju. Það þýðir ekkert annað en kjaraskerðingar. Ég óttast að þegar ríkisstjórnin talar tveimur tungum, annars vegar um endurskoðun almannatrygginga og úrbætur í þágu þeirra sem lifa undir fátæktarmörkum og hins vegar um nauðsyn þess að draga úr nýgengi örorku og draga úr útgjaldavexti, verði niðurstaðan að liðnu kjörtímabili sú að öryrkjar verði jafnvel enn þá verr staddir en í dag. Það er forsendubrestur að endurskoða ekki almannatryggingar, leiðrétta uppsafnaða kjaragliðnun og girða fyrir frekari kjaragliðnun í framtíðinni. Þá frábið ég mér allt tal um að endurskoðun hefði getað farið fram á síðasta kjörtímabili en ÖBÍ hafi staðið í vegi fyrir því. Öryrkjabandalagið neitaði að skrifa undir lagabreytingar sem hefðu opnað á það að óvinnufæru fólki yrði ýtt út á vinnumarkað. Svo einfalt er það.

Flokkur fólksins hefur lagt fram fjölda frumvarpa sem miða að því að leiðrétta uppsafnaða kjaragliðnun, koma í veg fyrir frekari kjaragliðnun og efla þátttöku öryrkja á vinnumarkaði en ríkisstjórnin hefur virt þau að vettugi, svæft mál í nefndum, greitt atkvæði gegn þeim í þau fáu skipti sem hægt er að draga málin úr nefnd og í atkvæðagreiðslu.

Önnur spurning mín til ráðherra lýtur að frítekjumörkum og skerðingum í almannatryggingakerfinu. Öryrkjar er sá hópur sem minnst hefur milli handanna, býr við þannig kjör að ef þeir reyna jafnvel að komast út á vinnumarkað, kannski í hlutastarf eða tímabundið, þá skerðast lífeyrisgreiðslur þeirra vel yfir 50% þegar tekið er tillit til skatta og skerðinga. Ríkisstjórnin virti öryrkja að vettugi um síðustu áramót, hækkaði frítekjumark atvinnutekna um helming hjá ellilífeyrisþegum en hélt frítekjumarki öryrkja óbreyttu. Frítekjumarkið hefur staðið í stað áratug og ætti í rauninni að vera tvöfalt hærra ef litið er til launa í dag, um 220.000 kr. Þá ákvað þessi ríkisstjórn að koma til móts við eldri borgara sem hafa orðið fyrir búsetuskerðingum með því að veita þeim sérstakan stuðning, 90% af lágmarkslífeyri sem skerðist krónu á móti krónu. Þessa löggjöf setti ríkisstjórnin skömmu eftir að hafa afnumið almennar krónu á móti krónu skerðingar með pompi og prakt þó að almennt í dag séu það 65 aurar á móti krónu.

Síðasta spurning mín til ráðherra lýtur að viðhorfi stjórnvalda gagnvart réttindum öryrkja og eldri borgara. Er eðlilegt að stjórnvöld grípi hvert einasta tækifæri til að túlka hvern einasta lagabálk í þá átt að fólk eigi ekki rétt á styrkjum eða að styrkir skuli leiða til skerðinga? Fólk getur átt rétt á styrkjum af ýmsu tagi, lyfjastyrkum, bifreiðastyrkjum, styrkjum vegna hreyfihömlunar, heimilisuppbót o.s.frv. Styrkjakerfið er hugsað til þess að mæta þörfum fólks og verja fyrir auknum kostnaði vegna veikinda og fötlunar. En þó að lög kveði á um rétt á styrk þá er málið að fá þá greidda. Stjórnvöld setja flóknar reglur með ítarlegum skilyrðum sem gera það að verkum að mun færri fá greidda styrki en þurfa og lög og reglur eru túlkaðar á þrengsta veg til þess að koma í veg fyrir endurgreiðslur. Ég bendi t.d. á þá háttsemi Tryggingastofnunar að túlka bifreiðastyrk á þann hátt sem kemur í veg fyrir að einstaklingar sem nota göngugrind eigi rétt á bifreiðastyrk vegna þess að reglurnar skilgreina hreyfihömlunina á þann veg að einstaklingurinn noti hækjur eða hjólastól. Í hvaða heimi er hægt að færa rök fyrir því að fólk sem notar göngugrind sé minna hreyfihamlað en það sem notar hækjur? Nýjasta dæmið um hversu mikið ríkið þráast við að viðurkenna réttindi öryrkja er nýfallinn dómur Hæstaréttar. Í gær kvað Hæstiréttur upp dóm í máli gegn Tryggingastofnun. Þar var ríkið kolfellt í þriðja skiptið í röð. Þeir hafa skert með ólöglegum hætti sérstaka framfærslu lífeyrisþega með vísan til búsetu viðkomandi erlendis. Mál þetta velktist um í dómskerfinu í heil sex ár. Á hverju dómstigi var kveðinn upp afgerandi dómur um ólöglegar skerðingar. Í hvert einasta skipti ákvað ríkið að áfrýja dómnum til æðra stjórnvalds. Þetta virðist vera meginregla hjá ríkinu. Af því að málið varðar öryrkja er pakkað í vörn. Öðru gegnir um t.d. ÁTVR sem hugðist áfrýja tapi fyrir héraðsdómi en fjármálaráðherra var ósammála þeirri ákvörðun og málið var látið niður falla. Það væri óskandi að ríkið hefði sömu stöðu þegar öryrkjar vinna dómsmál. Þá hefði kannski konan sem fór í málið sem vannst í gær notið góðs af ávinningnum en hún er því miður látin, enda tók málið mörg ár. Oft er ýjað að því að öryrkjar séu að svindla á ríkinu en dæmin snúast við hvert á fætur öðru. Ríki þverbrýtur réttindi öryrkja, þráast við að viðurkenna eigin brot. Ríkið er ekkert annað en síbrotamaður í málefnum almannatrygginga.