152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

almannatryggingar.

[16:06]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir að efna til þessarar þörfu umræðu. Það er stefna þess sem hér stendur og ríkisstjórnarinnar að vinna að réttlátu og gagnsæju kerfi almannatrygginga og sést það í áherslum stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu er eitt af stærstu verkefnum þessa kjörtímabils. Undirbúningur að þeirri vinnu hefur staðið yfir í ráðuneyti mínu og mun ég á næstunni skipa stýrihóp og sérfræðingateymi þvert á ráðuneyti til að leiða vinnuna. Endurskoðunin mun fara fram í áföngum. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er áhersla á að einfalda örorkulífeyriskerfið svo það verði skilvirkara, gagnsærra og réttlátara og að bæta afkomu örorkulífeyrisþega, sérlega kjör þeirra sem lakast standa. Þannig verða stigin skref í að vinna að því að leiðrétta kjaragliðnunina sem hv. þingmaður nefnir í spurningu sinni.

Um síðustu áramót var 1% viðbótarhækkun á greiðslum til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega og samhliða því var fjármagn veitt til úrbóta á réttindakerfinu til að koma í veg fyrir svokallað fall á krónunni. Sú aðgerð mun tryggja aukinn fyrirsjáanleika á réttindum þeirra sem hafa atvinnutekjur til lífeyris, aukið jafnræði og minna frávik við uppgjör.

Í heildarendurskoðuninni verður lögð áhersla á að auðvelda þátttöku og endurkomu einstaklinga með skerta starfsgetu á vinnumarkaði. Fólk þarf að hafa fjárhagslegan hvata af atvinnuþátttöku og fá tækifæri á vinnumarkaði án þess að afkomuöryggi þess sé ógnað. Þess vegna er mikilvægur hluti af endurskoðuninni að tryggja fólki sem missir starfsgetuna þjónustu og stuðning strax á fyrstu stigum þegar fólk er komið í hættu á ótímabæru brotthvarfi á vinnumarkaði.

Árangur af aukinni áherslu á endurhæfingu á síðustu árum er ótvíræður en það er liður í stuðningi á fyrstu stigum. Nýgengi örorkulífeyrisþega dróst saman um 28% milli 2016 og 2020 og hlutfall þeirra sem fara beint á lífeyri lækkaði úr 55% árið 2016 í 33% árið 2021. Samhliða snemmtækri íhlutun og endurhæfingu er afar brýnt að fjölga hlutastörfum og sveigjanlegum störfum sem henta betur fólki með skerta starfsgetu.

Fyrr í dag undir umræðum um fjármálaáætlun greindi ég frá því að frá og með næsta ári verður árlega varið 430 millj. kr. til að vinna að þessu verkefni. Það er mjög mikilvægt að þegar kerfisbreytingin á sér stað séum við betur í stakk búin að taka á móti fleira fólki með skerta starfsgetu á vinnumarkaði og til þess þarf fleiri hlutastörf og fleiri sveigjanleg störf. Í því samhengi þarf að sjálfsögðu að skoða skerðingar og frítekjumörk. Það þarf að eyða hindrunum og öfugum hvötum sem draga úr ávinningi fólks af þátttöku á vinnumarkaði. Endurskoðun kerfisins mun horfa til þessara þátta.

Greiðsla sérstakrar uppbótar vegna framfærslu samkvæmt lögum um félagslega aðstoð var áður þannig að 100% tekna lífeyrisþega, eða þar til því var breytt með lögum frá 2019, giltu afturvirkt frá árinu frá 1. janúar 2019 og þar með var ekki lengur um krónu á móti krónu skerðingu að ræða. Frá þeim tíma hefur við útreikning uppbótarinnar verið miðað við 65% af tekjum lífeyrisþega. Með sömu lögum var sú undantekning gerð frá því að bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar teljist að fullu til tekna við útreikning framfærsluuppbótar að nú teljist aðeins 50% af fjárhæð aldurstengdrar örorkuuppbótar samkvæmt 21. gr. laga um almannatryggingar til tekna lífeyrisþega í stað 100% áður. Með lögum nr. 127/2020 sem öðluðust gildi í janúar 2021 var síðan sú breyting gerð að nú teljast 95% af fjárhæð tekjutryggingar til tekna lífeyrisþega við útreikning uppbótarinnar í stað 100% áður. Því má síðan bæta við að frá og með 1. janúar 2020 lækka greiðslur örorku- og endurhæfingarlífeyris um 11% vegna tekna lífeyrisþega í stað 25% áður. Það var gert til að koma í veg fyrir hið svokallaða fall á krónunni, eins og ég nefndi áðan.

Ef ég tek þetta saman hefur þróunin verið þannig að dregið hefur verið úr tekjutengingum og lífeyrisþegum veitt aukið svigrúm til að bæta kjör sín. En hér þarf vissulega að gera miklu betur og það er það sem heildarendurskoðunin mun m.a. horfa til. Að þessu öllu sögðu megum við ekki gleyma því að sumt fólk getur einfaldlega ekki unnið og því fólki þarf líka að búa sómasamleg kjör og heildarendurskoðunin þarf líka að taka á því atriði.