152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

almannatryggingar.

[16:11]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Kjaragliðnunin á milli greiðslna til öryrkja frá Tryggingastofnun og launafólks á lægstu launum er komin í um 100.000 kr. á mánuði. Þetta er svona og það þarf að horfast í augu við það. En það er ekki að sjá í fjármálaáætlun til næstu fimm ára sem við ræddum fyrr í dag um að brúa eigi þetta bil á næstunni. Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sagði í umræðum um fjármálaáætlun að ástæðan fyrir því að ekki væri gert ráð fyrir fjármunum í áætluninni til að bæta kjör öryrkja og annarra lífeyrisþega væri sú að útreikningar væru ekki til og það þyrfti að bíða eftir þeim en einhverra breytinga sé að vænta árið 2024. En, frú forseti, útreikningar eru til á því hvað það kostar að brúa kjaragliðnunina. Þeir voru birtir í fyrra í góðri skýrslu Eflingar sem ber yfirskriftina Kjör lífeyrisþega – samspil almannatrygginga og lífeyrissjóða í mótun tekna, sem samin var af Stefáni Ólafssyni ásamt Stefáni Andra Stefánssyni. Niðurstaðan er að þetta kostar rúma 30 milljarða og skatttekjur skila sér til baka þannig að raunkostnaður er rúmir 20 milljarðar kr. Það er ekki dýrara að tryggja öryrkjum og eldra fólki greiðslur sem eru á við lægstu laun. Það eru sannarlega vonbrigði að í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sé ekkert að finna sem gefur von um að ríkisstjórninni sé alvara með að bæta kjörin og brúa bilið. Eftir situr fólk fast í fátæktargildru ár eftir ár. Enn er frítekjumark atvinnutekna öryrkja það sama í krónum talið og það hefur verið í meira en áratug. Ef frítekjumarkið hefði fylgt launavísitölu ætti það að vera rúmar 200.000 kr. en er rétt um 100.000 kr. á mánuði. Kerfið er letjandi til virkni og strax með hærra frítekjumarki og minni tekjuskerðingum væri hægt að bæta stöðuna en það er einnig nauðsynlegt að hækka grunninn (Forseti hringir.) fyrir þá sem ekki geta unnið eða eiga ekki rétt í lífeyrissjóði. Það þarf að taka skref í réttlætisátt og það er hægt með því að raða réttlætinu framar.