152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

almannatryggingar.

[16:13]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir þessa umræðu og ráðherra sömuleiðis. Í mörg ár hafa sérstaklega þeir sem eru á örorkulífeyri kallað eftir ákveðnu frelsi til að afla tekna af atvinnu án þess að lífeyrir almannatrygginga skerðist jafnharðan. Ákveðin skref hafa vissulega verið tekin en það þarf einfaldlega að gera miklu betur. Ég fékk að sjá yfirlit hjá öryrkja sem hefur alla tíð unnið úti á hinum almenna vinnumarkaði. Hann sýndi mér hvernig atvinnutekjur hans jukust smám saman á ákveðnu árabili en samhliða þurfti hann að greiða til baka stóran hluta af þeim atvinnutekjum sem hann vann sér inn.

Forseti. Þetta kerfi skortir alla hvata til að fá fólk sem vill vinna fyrir sér út á vinnumarkaðinn aftur. Tökum sem dæmi einstakling sem er með lífeyri upp á 1,5 millj. kr. Hann eykur við laun sín þannig að lífeyririnn lækkar um 700.000 kr. og hann þarf að greiða 500.000 kr. Þetta er ósanngjarnt og letjandi. Það verður að taka stærri skref til að auka þá hvata sem þurfa að vera til staðar. Það er nefnilega þannig að fólk vill leggja til samfélagsins, líka þeir sem hafa að einhverju leyti ekki fulla starfsorku.

Forseti. Það er mikið talað um að það þurfi að búa til hlutastörf og þar þarf að taka til hendinni. Ríki og sveitarfélög þurfa að ganga fram með góðu fordæmi og búa til hlutastörf því að af þeim störfum eru ekki aðeins greiddir skattar, þau skapa fólki ánægju og lífsfyllingu í okkar góða samfélagi.