almannatryggingar.
Forseti. Taflan á bls. 409 í fjármálaáætlun er mjög upplýsandi um áform stjórnvalda hvað þessi málefni varðar. Hér á að vera um 2,5% hækkun á ári til málefna öryrkja, í almannatryggingar, sem er miklu minna heldur en verðbólguþróun eða launaþróun, hvort sem er hærra. Það þýðir einungis eitt, að það sé búist við fækkun í þessum hópi öryrkja. Miðað við áætlanir er það rétt að árið 2027 verði um 200 manns færri sem fara á 75% örorkumat en núna. Ég fæ þetta samt ekki alveg til að ganga upp. Þar gæti munað að það er líka búist við því að hlutfall einstaklinga með 75% örorkumat með atvinnutekjur fari úr um 20% upp í tæp 30%, 25% upp í 28% eða svo, gæti munað því, því að þá eru það enn þá færri sem fá í rauninni af því að örorkubæturnar eru skertar á móti atvinnutekjum. Hins vegar er grundvallarvandinn í kerfinu enn þá til staðar og það er gliðnunin miðað við launaþróun á undanförnum 20 árum. Það er grundvallaratriði sem þarf að laga. Við erum með lög, 69. gr. almannatryggingalaga sem segir að lífeyrir eigi að hækka til jafns við verðbólgu a.m.k. en eigi að fylgja launaþróun alla jafna. Lífeyririnn hefur verið umfram verðbólgu en hann hefur verið of langt undir launaþróun, svo langt undir launaþróun að uppsafnað á 20 árum munar þar u.þ.b. 60%. Lífeyrir í dag þyrfti að vera 60% hærri til að hafa fylgt launaþróun. Spurningin er: Hvað á að gera við því?