almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að vita af því að ríkisstjórnin hyggst ganga í endurskoðun á almannatryggingakerfinu. Það er ekki fullkomið, alls ekki, og ég treysti ríkisstjórninni til að breyta og bæta almannatryggingakerfið til hagsbóta fyrir þá sem verst standa í okkar samfélagi. Við viljum fjárfesta í fólki og allir eiga að geta lifað sómasamlegu lífi, vaxið og dafnað. Það er það samfélag sem við viljum búa í. Það má enginn heltast úr lestinni. Við í Framsókn höfum ávallt unnið á grundvelli þess að manngildi sé ofar auðgildi. Það liggur í augum uppi að reglur um frítekjumark eru komnar á tíma endurskoðunar. Lengi hefur verið ákall í samfélaginu þess efnis. Við þurfum að veita þeim sem sækja til almannatrygginga meira athafnafrelsi. Reglusetningin er á ákveðinn hátt letjandi í núverandi mynd þar sem hún getur dregið úr hvata til að taka þátt í samfélaginu og atvinnulífinu. Við í Framsókn leggjum áherslu á að almenna frítekjumarkið hækki í skrefum og lífeyrisskerðingar vegna atvinnutekna verði afnumdar. Þannig getum við mætt þeim sem standa verst innan samfélagsins. Þetta er mikilvæg aðgerð og með henni náum við auknu jafnvægi innan samfélagsins. Í þessu samhengi vil ég einnig benda á áherslur Framsóknar varðandi atvinnutekjur eldri borgara. Við í Framsókn teljum það mikinn ávinning fyrir samfélagið að allir þeir sem vilja og geta unnið fái tækifæri til þess. Það er staðreynd að hlutfallsleg fjölgun eldra fólks er mikil hér á landi. Það þýðir þó ekki að eldra fólk geti ekki unnið þó að það sé komið á ellilífeyrisaldur og því teljum við í Framsókn það vera nauðsynlegt að afnema frítekjumark atvinnutekna eldri borgara.