152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

almannatryggingar.

[16:20]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Þegar maður heyrir svona tölur eins og að það vanti 60% upp á eða að það muni orðið 100.000 kr. á lægstu launum og bótum þá fallast manni í raun og veru bara hendur. Það er mikill áfellisdómur yfir íslensku velferðarkerfi hvernig fyrir okkur er komið í þessu. Gefum okkur að við séum að tala um lægstu laun upp á 300.000 kr. og það verður hækkun upp á 25.000 kr. á þessi lægstu laun. Það þýðir 8,33% hækkun. Og ef við höldum áfram þá þýðir 25.000 kr. á 500.000 kr. laun 5%. 25.000 kr. og 750.000 kr. þýðir 3,3%. 25.000 kr. á milljónina þýðir 2,5%. Ef við finnum eitthvert meðaltal af þessu þá er það 4,79%. Þannig að launavísitalan að meðaltali er að hækka um 4,79% þegar lægstu laun hækka um 8,33. En svo er verið að hækka það sem lægst er í samfélaginu um 4,79 en ekki 8,33%. Þannig búum við til þessa kjaragliðnun sem fólkið okkar sem verst stendur í samfélaginu þarf að taka á sig. Það er auðvitað forkastanlegt að við séum að búa til svona kerfi. Af hverju látum við ekki bætur í velferðarkerfinu fylgja almennum launabreytingum og hækkun á lægstu launum? Það hefur farið fram umræða í samfélaginu og orðið einhvers konar samfélagssáttmála um að það sé þörf á hækkun lægstu launa. Það hefur verið lögð áhersla á að hækka þau, m.a. með krónutöluhækkunum. Hvers vegna er ekki farin sams konar leið þegar verið er að horfa á tilfærslukerfin og skoða hvað fólk fær í bætur?