almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Við höfum nú rætt þetta stórfurðulega almannatryggingakerfi fram og til baka og kjaragliðnun er stórfurðulegt fyrirbrigði vegna þess að hún hefur aðallega komið fram vegna þess að það er verið að reikna eftir á einu sinni ári verðbólgu og yfirleitt rangt. Á einhvern furðulegan hátt hefur þeim tekist að komast að því að ef launaþróun er 7–8% þá eigi öryrkjar að fá 3,5% hækkun, kannski helminginn, stundum aðeins meira en helming. Og 1%, sem var auðvitað hrópað húrra fyrir um síðustu áramót, bara alveg stórkostlegt í 7% verðbólgu. En það fer ekki saman hljóð og mynd hjá ríkisstjórninni vegna þess að hvað er í samráðsgátt ríkisstjórnarinnar núna? Jú, þar er komið inn mál um það að nú ætli þeir að hætta að reikna lífeyrissjóðsgreiðslur mánaðarlega. Nú á að fara að reikna þær einu sinni á ári. Hvað þýðir það á mannamáli? Nákvæmlega sam hlutinn. Kjaragliðnun. Þeir ætla að viðhalda kerfinu. Þeir ætla að taka hana öðrum megin en viðhalda henni hinum megin. Ég spyr: Er ríkisstjórnin ekki búin að fá nóg af því að koma fram við almannatryggingaþega, öryrkja og ellilífeyrisþega þannig að það sé stanslaust verið að brjóta á þeim? Er ekki kominn tími til að sýna þessu fólki alla vega þá virðingu að það sé ekki að tapa mánuð eftir mánuð, ár eftir ár, jafnvel þó að það geri ekki aðrar kröfur en þær að fá launahækkanir sem aðrir fá? Það væri bara lágmark. Og leiðrétta kjaragliðnun undanfarinna ára, koma því í gegn og hætta að svelta fólk.