152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

almannatryggingar.

[16:24]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Frú forseti. Það hefur lengi verið stefnt að því að breyta örorkulífeyriskerfinu. Ég bind miklar vonir við að það takist núna vegna þess að í almennilegu velferðarsamfélagi þá hefur maður einfaldlega almannatryggingakerfi sem grípur þá sem ekki geta séð fyrir sér og sínum með atvinnu og býr þeim góð kjör. Meðan að frítekjumörk og uppbætur eru partur af kjaraumhverfi almannatrygginga þá verða uppbæturnar og frítekjumörkin að fylgja með þegar bætur almannatrygginga hækka vegna þess að þetta er partur af þeirri framfærslu sem fólk hefur. Gott velferðarsamfélag passar hins vegar líka upp á það að endurhæfing sé góð vegna þess að þar með getur fólk frekar tekið þátt í samfélaginu, hvort sem það er á vinnumarkaði eða með annarri þátttöku, og það skapar velsæld og það gerir fólki líka kleift að vinna fyrir sér. Þess vegna fagna ég því að hæstv. ráðherra ætli að leggja áherslu á það að fjölga hlutastörfum og setja sérstaka áherslu og fjármuni í það að auka endurhæfingu og vinnumarkaðsúrræði. En þetta tvennt verður að spila saman. Við sem getum unnið fyrir okkur eigum að geta fengið vinnu og við viljum vinna. Þegar fólk er hins vegar í þeim aðstæðum að geta ekki unnið þá eigum við heimtingu á því að hafa (Forseti hringir.) góða og örugga framfærslu því að þannig höfum við það í góðu velferðarsamfélagi.