almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson fékk eiginlega ekki svör við sínum skýru spurningum í ræðu ráðherra en vonandi bætir ráðherra úr því hér á eftir. Ójöfnuður er pólitísk ákvörðun og kjaragliðnun milli launa og lífeyris er pólitísk ákvörðun. Þetta er ekki náttúrulögmál. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ákvað núna í fjárlögum ársins 2022 að auka enn á kjaragliðnunina á þessu ári, láta greiðslur almannatrygginga hækka minna heldur en fyrirséðar taxtahækkanir og með verðbólguskotinu undanfarna mánuði verður kjaragliðnun miklu groddalegri. Þegar verðbólgan mælist 6,9% þá er auðvitað kaupmáttur hinna tekjulægstu étinn upp. Það er pólitísk ákvörðun hæstv. félagsmálaráðherra úr Vinstri grænum og hæstv. fjármálaráðherra úr Sjálfstæðisflokknum og auðvitað forsætisráðherra, að viðhalda þessari þróun án þess að grípa til mótvægisaðgerða og án þess að leiðrétta kjaragliðnun.
Forseti. Ég verð að nota tækifærið hér í þessari umræðu til að leiðrétta alveg ótrúleg ummæli sem hæstv. fjármálaráðherra lét falla hérna á þriðjudag. Hann gerði lítið úr hugtakinu kjaragliðnun, sem þessi umræða hér hverfist um, og sagði að með því að nota þetta, tala um kjaragliðnun, þá værum við „skyndilega komin út í allt aðra umræðu um að þessi hefðbundnu viðmið okkar sem bæði eru lögfest og við höfum talað fyrir hér, að tryggja vaxandi kaupmátt í samræmi við getu ríkissjóðs hverju sinni, eru hætt að skipta máli. Menn vilja fara að tengja sig við einhver ný viðmið.“ Ég vil því spyrja hæstv. félagsmálaráðherra um það og fá skýr svör hérna á eftir: Er ekki örugglega meðvitund um það innan ríkisstjórnarinnar og meðal ráðherra að í lögum um almannatryggingar stendur mjög skýrum stöfum, í 69. gr. um bætur almannatrygginga, að ákvörðun þeirra skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs? Er það bara fjármálaráðherra (Forseti hringir.) sem er í lögvillu um þetta og þekkir ekki almannatryggingalögin eða er það ríkisstjórnin öll? (Forseti hringir.) Ætlar hæstv. ráðherra að fara yfir þessi mál með fjármálaráðherra og treystir hann sér (Forseti hringir.) til að koma hingað upp og segja bara hátt og skýrt: Kjaragliðnun verður stöðvuð á okkar vakt? Treystir hann sér til þess?