almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka þessa umræðu. Í dag hefur verið skrifaður fjölda frétta hér af Alþingi en það er líklega frétt á Vísi sem sló mig mest þar sem stendur: „Lést áður en stóri sigurinn vannst í Hæstarétti“, með leyfi, virðulegur forseti:
„„Þetta var rosalega erfitt fyrir hana. Hún beið lengi,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands um konu sem lagði Tryggingastofnun ríkisins fyrir öllum dómstigum í deilu um skerðingu á sérstakri framfærsluuppbót vegna búsetu erlendis.“
Hún er látin, því miður. Það er sorglegt og dapurlegt. Hvernig má það vera, hæstv. ráðherra að við leggjum það á fólk að berjast fyrir réttindum sínum, leggjum það á fólk sem glímir við örorku og veikindi að þurfa sigra ríkið á dómstigi eftir dómstigi? Nú beini ég líka þeirri spurningu til hæstv. ráðherra í ljósi þess að hann er jafnframt samstarfsráðherra Norðurlandanna. Í þessari frétt kemur fram að konan hafi búið í Danmörku hluta af sinni ævi og það sé ástæðan fyrir því að Tryggingastofnun hafi verið að skerða þessa sérstöku framfærsluuppbót. Verandi hér talsmaður Norðurlandasamstarfs og formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, þar sem við höfum sett okkur þau markmið að þetta sé samþættasta velferðarríki í heimi á Norðurlöndum, stóð ég virkilega í þeirri meiningu að við værum búin að tryggja réttindi norræna íbúa á milli landanna.
Hæstv. ráðherra. Ég er algjörlega sannfærð um að við séum sammála um að við verðum að gera betur í þessu. Það líður eiginlega varla sú vika öðruvísi en það komi fréttir um framkvæmd almannatrygginga sem oftar en ekki er hnekkt í Hæstarétt. Það er að mínu mati umhugsunarefni, forseti, hvers vegna lífeyrisþegar þurfa að berjast fyrir rétti sínum fyrir dómi. Er kerfi okkar of flókið og óskýrt eða hvað er það sem við hér í þessum sal þurfum að sameinast um að gera til að þetta verði betra?