almannatryggingar.
Forseti. Talandi um réttindi þá hafa ellilífeyrisþegar 2,4 milljónir á ári í sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna. Nú er ég með munnlega fyrirspurn til ráðherra um þetta og mig langar til þess að undirbúa í rauninni bæði ráðherra og þingheim fyrir þær umræður. Vandinn er hérna að samkvæmt lögum um tekjuskatt er ellilífeyrir atvinnutekjur og það er ekki heimild í lögum um almannatryggingar til að undanskilja greiðslur úr lífeyrissjóðum frá því að vera atvinnutekjur. Það er heimild fyrir því í 16. gr. fyrir örorkulífeyrisþega en það er annar galli sem útilokar það. En það er ekki heimild í lögum um almannatryggingar til að undanskilja ellilífeyrisgreiðslur úr lífeyrissjóðum sem atvinnutekjur. Tryggingastofnun hins vegar fer fram hjá því og skerðir grunnlífeyrinn miðað við útgreiddar lífeyrissjóðsbætur, ellilífeyri frá skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum. Umboðsmaður Alþingis hefur fjallað um þetta og segir að það sé mjög skýrt í lögskýringargögnum að það var ætlun Alþingis að þannig myndi það virka. En lagatextinn er ekki þannig. Þetta gerðist árið 2016 þegar öryrkjar sögðu nei við þessu nýja kerfi sem ellilífeyrisþegar fóru í. Þá þurfti að skipta upp undanþágugreinunum og undanþágan um að lífeyrissjóðsgreiðslur teldust ekki atvinnutekjur hélst hjá örorkulífeyrisþegum en ekki hjá ellilífeyrisþegum. Þar af leiðandi er búið að vera að skerða grunnlífeyri ellilífeyrisþega frá 2016 þar sem lífeyrissjóðsgreiðslur þeirra hefðu átt að vera taldar sem atvinnutekjur og falla inn í sérstaka frítekjumarkið um 2,4 milljónir á ári.