152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

almannatryggingar.

[16:36]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Við skulum ekki gleyma því að það eru ráðherrar sem fara í mál við skjólstæðinga sína. Það gerist ekki af sjálfu sér. Það eru líka ráðherrar sem ákveða hvernig skuli með peninga farið. Við skulum heldur ekki gleyma því að Framsóknarflokkurinn hefur oftar en ekki stýrt félagsmálaráðuneytinu í gegnum tíðina þannig að það er ekki á vakt bara einhverra sem þessi gliðnun hefur átt sér stað.

Hv. þm. Björn Leví Gunnarsson minntist á lögin og hvernig þetta væri og talaði um að lífeyristekjur væru atvinnutekjur. Já, þetta eru atvinnutekjur í þeim skilningi að þetta eru frestaðar atvinnutekjur. Þetta eru atvinnutekjur sem fólk hefur geymt til efri áranna og þess vegna spyr maður: Hvernig stendur á því að verið er að skerða bótakerfið vegna frestaðra atvinnutekna? Það hefur verið nefnt í þessum ræðustól að það kosti 15–16 milljarða að færa frítekjumark lífeyrisgreiðslna upp í það sama og frítekjumark atvinnutekna, 15–16 milljarða. Þetta myndi gjörbreyta stöðu margra sem eru að taka út sinn lífeyri, svona lítið. Við sjáum að það er verið að eyða peningum í alls konar en þarna er hópur sem situr eftir, flestir með um 200.000–400.000 kr. á mánuði til að lifa við sult og seyru en það hefur ekki verið hægt að horfa til þessa hóps. Tekjuskerðingar í bak og fyrir. Þótt hæstv. ráðherra haldi því fram hér í pontu að skerðingar og tekjutengingar hafi minnkað er það bara rangt. Þær hafa aukist.