152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

almannatryggingar.

[16:39]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka öllum þeim sem hafa tekið þátt í þessari umræðu. Ég hef ekki trú á því eða er bjartsýnn á að það skili einhverju. Því miður eru lögbrot, múrar og gildrur það sem bíður flestra í almannatryggingakerfinu, þessu bútasaumaða skrímsli sem hefur verið búið til á undanförnum áratugum. Ef fólk vill neyta réttar síns þá verður það að fara í héraðsdóm, Landsrétt, Hæstarétt, alveg sama hversu vel undirbúið málið er og þó að umboðsmaður Alþingis sé búinn að staðfesta það. Ég vil taka undir það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sagði hér áðan. Hún beið í sex ár. Veikt fólk hefur ekki tíma til að bíða í sex ár. Við skulum átta okkur á því að 1988, við upphaf staðgreiðslu, voru lægstu bætur almannatrygginga skattlausar og fólk átti meira að segja afgangspersónuafslátt upp í lífeyrissjóð. Ef þetta væri nákvæmlega svoleiðis í dag væri þessi hópur með 40.000 kr. meira á mánuði sem gæti jafnvel skipt sköpum þó að það næði ekki að hífa fólk upp fyrir fátæktarmörk. Það er líka stórfurðulegt að frítekjumörk, eins og hjá eldri borgurum, skuli ekki gilda líka um tekjur úr lífeyrissjóði. Á hverjum bitnar það verst að það sé ekki svoleiðis? Konum. Er ríkisstjórn eftir ríkisstjórn í fjandskap við konur? Finnst þeim þær hafa það svo ofboðslega gott að það þurfi endilega og sérstaklega að skerða þær alveg í spað ef þær hafa einhverjar tekjur frá lífeyrissjóði? Þetta fólk er ekki að biðja um mikið. Það er bara að biðja um að fá að njóta þess lága lífeyris sem það er búið að vinna fyrir á lágmarkslaunum.