almannatryggingar.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir að taka þetta mikilvæga málefni upp hér á Alþingi og öllum þeim hv. þingmönnum sem tekið hafa þátt í umræðunni fyrir þeirra innlegg. Ég tek með mér það sem hér hefur verið rætt inn í þá mikilvægu vinnu sem fram undan er við að endurskoða örorkulífeyriskerfið sem svo sannarlega er kominn tími til að gera breytingar á.
Ég ætla að bregðast við nokkrum þeim atriðum sem hér hafa komið fram og kannski sérstaklega koma inn á dóm Hæstaréttar sem féll í gær. Niðurstöðu dómsins fagna ég. Ég fagna henni vegna þess að þetta er réttlætismál. Þarna er um að ræða einn þann hóp örorkulífeyrisþega sem hefur það hvað verst í landinu þannig að ég fagna því að þessi niðurstaða sé komin og ráðuneytið mun í samstarfi við Tryggingastofnun koma þessum málum í lag.
Varðandi athugasemd hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um Norðurlöndin þá tek ég það með mér sem veganesti en orð hennar gagnvart mér varðandi þetta mál — það ætti kannski að beina spurningunni annað en til mín, svo það sé nú tekið fram.
Frítekjumarkið hafa mjög mörg ykkar nefnt hér í dag. Málið er að það kerfi sem við erum með í dag er allt of flókið. Smávægilegar breytingar á einum stað valda skerðingu á öðrum stað og þess vegna þarf að ráðast í þessa heildarendurskoðun. Það þarf að gera í áföngum eins og ég hef hér nefnt. Við þurfum að hafa tilbúin fleiri sveigjanleg störf og hlutastörf til að taka á móti fólki sem hefur starfsgetu (Forseti hringir.) og nálgast verkefnið þannig. Á sama tíma þarf að stoppa upp í þá kjaragliðnun sem hér hefur orðið og margir hv. þingmenn hafa nefnt.