152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:44]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Það er vont að eiga umræðu hér í þingsal þar sem ráðherra ávarpar í raun ekki á nokkurn hátt þær spurningar sem þingmenn beina til hans. En það sem mig langar að ræða hér undir þessum lið, um fundarstjórn forseta, varðar það að það er kominn mánuður síðan ég sendi fyrirspurn til skriflegs svars til félagsmálaráðherra um þann fjölda öryrkja sem hafa orðið fyrir skerðingu á greiðslum Tryggingastofnunar vegna úttektar á séreignarsparnaði. Það er mjög brýnt að við hér á þingi fáum svör við þessari fyrirspurn sem allra fyrst. Ég minni á að samkvæmt þingsköpum ber að svara fyrirspurn að jafnaði innan 15 daga svo ég vil biðla til forseta að beita sér fyrir því að félagsmálaráðherra svari þeirri fyrirspurn. Það er kannski lágmark að ráðherra svari skriflegum fyrirspurnum hratt og vel.