152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:45]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Ég vil taka undir þessa ósk hv. þingmanns. Við höfum staðið í þeim sporum núna allnokkrum sinnum að benda virðulegum forseta á þessar lágmarksreglur sem við búum við. Við höfum ákveðin verkfæri sem þingmenn, eitt þeirra er að leggja fram skriflegar fyrirspurnir til ráðherra. Lögin eru afskaplega skýr um það hver tímamörkin eru í þeim efnum en það er því miður oftar en ekki niðurstaðan að farið er verulega fram úr þeim tímamörkum sem til er ætlast samkvæmt lögunum sjálfum. Mér finnst það haldast í hendur við annan takt sem við höfum verið að upplifa hérna síðustu mánuði. En ég vil beina því til forseta og óska eftir liðsinni hennar um að ýta nú við hæstv. ráðherrum um það að sinna því, eins og þeim er skylt samkvæmt lögum, að svara spurningunum og á réttum tíma.