um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég vil bara taka undir með þeim sem hér hafa kvatt sér hljóðs um hversu slæmt það sé þegar ráðherrar svara ekki spurningum fyrr en eftir dúk og disk. Látum einmitt liggja milli hluta þó að þeir snúi út úr og svari ekki munnlegum fyrirspurnum eins og gerist oft í óundirbúnum fyrirspurnatíma, en þegar skriflegar fyrirspurnir tefjast jafn oft og raun ber vitni þá hljótum við að velta fyrir okkur hvort svörin séu ráðherrunum óþægileg. Þá langar mig sérstaklega að nefna, vegna þess að hér var á undan mér hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, fyrirspurn hennar frá byrjun þings um aðgengi fólks að sálfræðiþjónustu óháð efnahag. Það svar fór 100 dögum fram úr 15 daga hámarkinu, 15 daga skilafrestinum, einfaldlega vegna þess að svarið (Forseti hringir.) geymdi frekar nöturlega mynd; ríkisstjórnin væri bara ekkert að gera vel, hvað þá að gera betur.