aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Forseti. Í 2. gr. segir að eigi síðar en fyrir árslok 2025 eigi að hefja endurskoðun. Nú er 2022 svo þetta eru þrjú og hálft ár, henni á að vera lokið í síðasta lagi fyrir árslok 2026. Þetta bráðabirgðaákvæði hefur verið framlengt ansi oft. Í nefndaráliti í desember 2018 kemur fram, með leyfi forseta:
„Nefndin áréttar mikilvægi þess að farið verði í úttekt á starfsumhverfi starfsmanna sem starfa við notendastýrða persónulega aðstoð og að mörkuð verði skýr stefna um framtíðarstarfsumhverfi þjónustunnar.“
Þarna erum við að tala um átta ár, alla vega sjö, þetta er í lok 2018. Hvað tekur eiginlega svona langan tíma? Ofan í þetta þá er ekki einu sinni verið að fara eftir bráðabirgðaákvæði í lögunum um notendastýrða persónulega þjónustu um fjölda samninga, sem er núna á síðasta árinu miðað við fjölda samninga sem ríkið kemur að. Ég klóra mér í hausnum yfir þessu. Af hverju er verið að draga það svona rosalega að gera almennilega í þessum málum? Í síðasta lagi í árslok 2026? Hvað tekur svona langan tíma?