aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég veit ekki alveg hvort hv. þingmaður er að misskilja eða hvort ég er að misskilja hv. þingmann. En það sem er verið að gera með þessu frumvarpi er í rauninni að lögfesta skilyrði, setja ákvæði varanlega í lögin um skilyrði fyrir undanþágu frá þessum vinnutímaákvæðum löggjafarinnar. Það var kveðið á um það í bráðabirgðaákvæði sem rann út núna 1. apríl þannig að það er jákvætt skref fram á við að við séum komin þarna vegna þess að hingað til höfum við verið að framlengja bráðabirgðaákvæði 9 í hollustuháttalögunum og þess vegna er mjög jákvætt að við séum búin að móta í rauninni það sem það bráðabirgðaákvæði átti að uppfylla í millitíðinni. Hins vegar varðandi árið 2026 og þá endurskoðun sem við hyggjumst þá ráðast í á þessu ákvæði laganna sem þarna er verið að setja inn þá er sjálfsagt mál að skoða það fyrr ef ástæða þykir til, fyrr heldur en árið 2025. Ég get alveg tekið undir það með hv. þingmanni að þetta kann að þykja langur tími. En það bráðabirgðaákvæði er í rauninni til þess að það verði tryggt að hingað fyrir Alþingi komi endurskoðun ef þurfa þykir. En það er ekkert sem bannar það að hún gerist fyrr heldur en fyrir þennan tíma.