152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[18:33]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Nei, mér finnst ekkert rosalega jákvætt að það sé verið að gera það sem var í rauninni bráðabirgðaákvæði með smá viðbótum varanlegt því undanþágan sem slík var ekkert góð, bara ákveðið skítamix út af aðstæðum. Og eins og ég segi, í nefndaráliti frá desember 2018 er sagt: Vinsamlegast gerið þetta betra og náið stefnu um framtíðarstarfsumhverfi þessarar þjónustu. Núna er bara verið að lögfesta þetta bráðabirgðaákvæði sem var alltaf verið að framlengja. (Gripið fram í.) Í rauninni, hæstv. ráðherra, það eru vissulega sett aukaskilyrði hérna en tímaramminn er þarna til staðar líka. Ég sé þetta ekki sem uppfærslu á réttindunum í rauninni. Þetta er mun nær því að vera áframhaldandi bráðabirgðaákvæði, núna er það bara fast í lögum, miðað við alla vega starfsaðstæðurnar. Vissulega þarf að huga að fleiri atriðum en ég sé ekki að starfsaðstæður breytist neitt sérstaklega vel. (Forseti hringir.) Ef svo er þá bara skildi ég framsögu ráðherra ekki nægilega vel.