152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[18:34]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Við erum hérna að setja varanlegt ákvæði með ákveðnum skilyrðum sem ekki voru til staðar í bráðabirgðaákvæðinu sem féll úr gildi núna 1. apríl. Þess vegna segi ég að þetta sé framför, vegna þess að við erum að skýra betur hvaða skilyrði samningar þurfa að uppfylla til að það sé hægt að veita þessar undanþágur. Það bráðabirgðaákvæði sem kveðið er á um í þessu frumvarpi, þ.e. 2. gr., er einfaldlega um að endurskoða þessi skilyrði að ákveðnum tíma liðnum. Þess vegna er ekki um að ræða framlengingu á bráðabirgðaákvæðinu sem var að falla úr gildi núna 1. apríl. Það er bara alrangt.