aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Það hefur kannski lítið upp á sig að setja lög og fjalla um lög ef lögum er ekki fylgt. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra aðeins og ég held að það geti gagnast okkur núna í framhaldinu í kvöld í umræðunni um þetta tiltekna mál. Í ákvæði til bráðabirgða í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er kveðið er á um að á árinu 2022 veiti ríkissjóður framlag til allt að 172 samninga. Ef við skoðum lögskýringargögnin að baki greinargerð frumvarps til heildarlaga þá segir þar skýrum stöfum að samningum verði fjölgað jafnt og þétt til ársins 2022 og fjármagn verði aukið í skrefum þar til rúmlega 170 samningar verði á landinu öllu.
Núna erum við stödd á árinu 2022 og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hve margir samningar séu nú þegar í gildi og séu fjármagnaðar af ríkinu á þessu ári og ef þeir eru ekki orðnir rúmlega 170, hvort það verði ekki brugðist skjótt við og hvort það muni nokkuð standa á ríkinu að fjármagna þá.