152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[18:37]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er því miður svo að við erum ekki komin með alla þessa samninga. Það er alger staðreynd. Fjöldi þeirra, ef ég man þetta rétt, er annaðhvort 70 eða 100. Hv. þingmaður verður að fyrirgefa mér að ég muni ekki hvort það er. Það sem ég vonast til að við getum gert er að stoppa upp í þetta gat en ég hef ekki væntingar eða vonir til þess að það takist á þessu ári, þannig að ég sé alveg hreinskilinn með það. Það er miður þar sem bráðabirgðaákvæðið í lögunum kveður mjög skýrt á um að það eigi að vera komnir 172 samningar. Ástæðan fyrir því er fyrst og fremst sú að það hefur verið mun meiri kostnaður á grundvelli gerðar hvers samnings heldur en búist var við í upphafi. Þannig að ef ég man þetta rétt erum við sirka að setja það fjármagn sem var í rauninni ákveðið að gera en samningarnir eru of fáir þar sem hver og einn þeirra hefur verið dýrari. Þetta er verkefni sem einfaldlega þarf að stoppa upp í.