aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að mörgu leyti mjög skýr svör. Þá höfum við það að samningar eru u.þ.b. helmingi færri en lög gera ráð fyrir og kveða á um. Ég fagna því auðvitað að hæstv. ráðherra vilji bæta þar úr. Í því samhengi vil ég grípa niður í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Þar segir á bls. 99: „Þá aukast framlög vegna NPA samninga varanlega um 320 m.kr. frá árinu 2023 til að standa straum af gildandi samningum …“
Getur hæstv. ráðherra komið hérna upp og sagt hátt og skýrt og hreint út að það verði fjármagnaðir 170 eða fleiri samningar á áætlunartíma þessarar fjármálaáætlunar? Því að (Forseti hringir.) þessi texti bendir ekki til þess heldur til þess að bara sé gert ráð fyrir fjármögnun gildandi samninga. Ég ætla biðja hæstv. ráðherra um að svara þessu skýrt.