152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[18:39]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að í þeirri fjármálaáætlun sem hv. þingmaður er með fyrir framan sig er verið að gera ráð fyrir því að það fjármagn sem kom inn í rauninni á fjárlögum ársins 2022 til eins árs verði orðið varanlegt frá og með árinu 2023, sem þýðir það að við erum búin að fjármagna þá samninga sem nú þegar eru í gildi. Það þýðir að við eigum eftir að fjármagna allmarga samninga á næstu árum. Ég er yfirleitt orðvar maður og þess vegna ætla ég ekki að segja að það muni verða gert á einhverjum ákveðnum tíma. En það sem ég ætla að segja er að markmið mitt er að við getum náð því sem allra, allra fyrst. (JPJ: Þetta er fimm ára áætlun)