aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér um hollustuhætti og aðbúnað þeirra sem taka að sér að þjónusta þá sem njóta þess að við þá hafa verið gerðir svokallaðar NPA-samningar. Þetta er tiltölulega nýtt þjónustuúrræði en til bráðabirgða hafa verið þessir svokölluðu beingreiðslusamningar sem NPA hefur verið að taka við af. Þetta er búið að vera bitbein á milli ríkis og sveitarfélaga, hvernig að þessu var staðið og er eitt af þeim atriðum sem við ættum að læra af. Þarna er búið að vera að henda þessu á milli ríkis og sveitarfélaga en það var í ákveðið í byrjun að þetta ætti að vera fjármagnað sameiginlega af sveitarfélögum og ríki. En ríkið segir bara: Nei, peningurinn er búinn og það verða ekki gerðir fleiri samningar af því að þetta er ekki á fjárlögum. En sveitarfélagið getur ekkert gert það. Það þarf bara að gera svo vel að veita þá þjónustu sem er lögbundin og af því að úrræðið er nálægt þeim aðilum sem þurfa á þessu að halda þá ber sveitarfélaginu að sinna þessu þrátt fyrir að ríkið komi ekki með sitt framlag.
Áður en ég fer í seinna andsvari mínu aðeins ofan í það sem þarna er verið að ræða, um aðbúnað þeirra sem veita þessa þjónustu, langar mig að spyrja ráðherra: Hvernig stendur á því að verið er að búa til úrræði sem ekki fylgir svo fjármagn?