152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[18:43]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Svar mitt er í raun að hér er einfaldlega ekki búið að fjármagna þá 172 samninga sem eru í bráðabirgðaákvæðinu og hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson nefndi áðan. Ástæðan er sú að hver og einn samningur hefur verið dýrari en gert var ráð fyrir þannig að fjármagnið sem átti að fara í þetta — sú upphæð hefur komið fram, sú upphæð hefur verið tryggð en hún dugar því miður ekki fyrir jafn mörgum samningum og áætlað var. Það er því auðvitað verkefni okkar að halda áfram að nálgast fjármagn inn í þetta.

Ég vil líka segja það að núna stendur yfir vinna starfshóps sem skilar vonandi af sér á allra næstu vikum, vonandi dögum, sem er að fara yfir þá kostnaðarskiptingu sem hv. þingmaður kom aðeins inn á á milli ríkis og sveitarfélaga. Ég bind miklar vonir við að sú skýrsla og niðurstaða hennar verði góður grunnur fyrir áframhaldandi samtal og samstarf ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að þessum málaflokki. Þar er alveg ljóst að það er heilmikill hallarekstur á þessum málaflokki hjá sveitarfélögunum sem ég horfi á með þeim hætti að ríki og sveitarfélög verða á grundvelli þessarar greiningar, sem er náttúrlega forsenda þessa, að taka samtal um hvernig skiptingunni eigi að haga og hátta. Þá getum við fært þessi mál til betri vegar.