152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[18:45]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Samningarnir hafa verið dýrari og það hefur komið niður á sveitarfélögunum af því að ríkið hefur ekki komið með sitt framlag inn í þetta. Við þekkjum nú dóminn sem féll gegn Mosfellsbæ varðandi þetta. En varðandi aðbúnað þá þekkjum við ákvæðin í kjarasamningunum um ellefu tíma hvíld sem er skrifuð inn í kjarasamningana og maður er farinn að brjóta lög ef maður er kominn niður fyrir átta tíma. Þá spyr maður: Hvers vegna er verið að fara að gefa afslátt af þeim ákvæðum og þeim vinnuverndarákvæðum sem búið er að setja inn í bæði lög og kjarasamninga? Við ætlum að rýra rétt einhverra af því að við ætlum að bæta rétt hinna. Það er svolítið snúið fyrir mér að horfa á þetta í þessu samhengi. Mér finnst einhvern veginn að það sé ekki hægt að gefa afslátt af rétti sem búið er að búa til. Við vitum að margir sem þjóna (Forseti hringir.) þessum hópi eru ættingjar og fjölskyldumeðlimir, sem búa oft inni á sama heimili. Þannig að ég mér finnst þetta vera afsláttur af þeim ákvæðum sem búið er að setja í lög.