152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[18:46]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þarna kemur hv. þingmaður kannski að kjarna málsins í því hvernig á að nálgast þetta. Það er vissulega verið að skerða þau grundvallarréttindi sem kveðið er á um varðandi vinnutíma starfsmanna en það er gert í undantekningartilvikum. Þarna er verið að setja þröng skilyrði sem eru þá undanþága frá meginreglunni. Þess vegna er líka kveðið á um það að að ákveðnum tíma liðnum verði farið yfir framkvæmdina á þessu, reynsluna af þessu og það er mikilvægt að gera. Frumvarpið er unnið í góðu samráði við aðila vinnumarkaðarins og hagsmunasamtök fatlaðs fólks. Þetta er einhver millivegur sem þarna er verið að reyna að feta af því að það er líka mikilvægt að við getum tryggt réttindi fatlaðs fólks sem þarf á að halda notendastýrðri persónulegri aðstoð.