aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. félags og vinnumarkaðsráðherra Guðmundi Inga Guðbrandssyni fyrir framsöguna á þessu frumvarpi. Notendastýrð persónuleg aðstoð, NPA, eins og það er oftast kallað, hefur svo sannarlega breytt lífi þess fólks sem hefur verið svo heppið að vera í hópi þeirra sem gerðir hafa verið samningar við. Þetta breytir lífi fólks úr því að vera einangrað, lokað og takmarkað gagnvart því að geta gert hluti. Við sem lifum við það frelsi að geta gert allt sem okkur langar til að gera getum ekki sett okkur í spor þeirra og skilið hversu mikið frelsi þau fá við það að komast inn í svona samning. En því miður, eins og hefur komið fram hér, eru þessir samningar allt of fáir og þetta er allt saman illa fjármagnað. Talað er um að kostnaðurinn sé hærri og ég spyr mig: Þegar verið var að vinna þessa vinnu, vinna þessa löggjöf um þetta mikilvæga mál, af hverju var ekki gerð betri greining á því hver kostnaðurinn myndi verða og áætlanir fram í tímann um það hvernig kostnaðurinn þyrfti að þróast? Hæstv. ráðherra nefndi að greiningarvinna væri í gangi þar sem hluti af þessum kostnaði fellur jú á sveitarfélögin og þar væri verið að gera greiningu til að átta sig á því hvernig kostnaðarskiptingin ætti að vera. Allt þetta fær mig til að hugsa um það, þegar við erum að setja lög hér á Alþingi, hversu vel við vinnum þá vinnu.
Við erum að setja lög, í þessu tilfelli um þessa notendastýrðu, persónulegu aðstoð, og með því að setja þau lög, með því að gera áætlanir um að ákveðinn fjöldi verði studdur fyrir ákveðinn tíma, þá erum við að gefa fólki vonir um að öðlast frelsi og geta tekið þátt að fullu leyti í þessu samfélagi. Ef við erum ekki búin að vinna nægilega góða vinnu við það, að búa til þær greiningar og þær áætlanir um hvað þetta muni kosta og við erum ekki búin að semja um að bæta við því fjármagni sem þarf að bæta við, þá erum við að svíkja þetta fólk. Þetta er ekki fólk sem er með meira en milljón á mánuði við það að sitja hér og setja lög. Nei, þetta er fólk sem er oft bundið heima hjá sér, getur ekki farið neitt, fólk sem er öryrkjar. Þarna gáfum við þeim von sem við erum að svíkja.
Það frumvarp sem við ræðum hér í dag um að geta veitt þessu fólki, sem þó er á samningi, þjónustu í undantekningartilvikum þar sem við förum yfir vinnutímatakmörk sem eru í öðrum lögum fær mann til að spyrja — áður en ég spyr þá vil ég segja að ég get alveg skilið að það verði einhvern tímann einhver atvik þar sem kannski verði að fara eitthvað eða gera eitthvað og það sé hreinlega ekki hægt að skipta út starfsmanni til að setja annan í staðinn til þess að vinnutíminn verði ekki of langur. Það verða að sjálfsögðu alltaf einhver slík undantekningartilvik. En ég spyr mig: Af hverju þurfum við að setja það inn í lög að það megi fara yfir þann vinnutíma? Er það aftur vegna þess að það er ódýrara að borga viðkomandi fyrir að fara yfir þann tíma sem hann má vera að vinna en að tryggja að það séu nægilega margir starfsmenn til að sinna viðkomandi aðila? Það mikilvæga í þessu máli er það að við stöndum saman hér á Alþingi til að tryggja það að við hættum að svíkja þau loforð sem við höfum gefið.