aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Ég og hv. þingmaður erum sammála um mikilvægi þessara samninga. Þeir breyta lífi margra og hafa haft áhrif til góðs fyrir þá sem hafa fengið þá. En síðan eru aðrir sem bíða eftir að fá slíka samninga og manni þykir það skrýtið. Það virðist sem sumt í fjárlögunum sé bara opinn víxill og það er greitt og greitt. En svo virðast aðrir hlutir vera háðir tiltekinni upphæð og svo er bara sagt: Stopp, peningurinn er búinn. Við sáum verkefni eins og Hefjum störf, sem var auðvitað þarft verkefni. Það voru áætlaðir einhverjir peningar í það en það fór langt umfram það sem gert hafði verið ráð fyrir. En það var ekkert stoppað. Það verkefni fékk bara að fljóta. Við sjáum líka verkefni eins og Allir vinna, sem þótti gott síðast en er umdeilt í þenslunni sem er núna. Það er líka bara opinn víxill. En það er ekkert opinn víxill í þennan þjónustuþátt sem er svo mikilvægur fyrir marga. Maður veltir fyrir sér: Hvernig stendur á því að sum þjónustuúrræði er háð fjárveitingu en önnur ekki? Það finnst mér skjóta skökku við af því að við viljum þessum hópi svo vel. Hann skiptir máli í samfélaginu, alveg eins og við hin.