aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvörin. Þetta er náttúrlega bara forgangsröðun og ekkert annað. Það var ekkert mál að finna einhverja milljarða, 1,5 eða hvað það var, til að vera með aukaráðuneyti. En það var allra náðarsamlegast hægt að bæta við 300 milljónum bara til að standa við gerða NPA-samninga, ekki til að bæta við heldur til að standa við þá sem þeir voru búnir að gera. Hvort skiptir meira máli að einhver Framsóknarmaður fái ráðuneyti eða að fólki sé gefið frelsi til að lifa sem hluti af samfélaginu? Ég veit hver mín forgangsröðin er. Hún er greinilega önnur innan ríkisstjórnarinnar.