152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[18:59]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það virðist vera í eðli margra stjórnmálamanna að lofa hlutum sem ekki er hægt að standa við. NPA er dæmi um það. Gjaldfrjáls leikskóli er eitt sem hæstv. forsætisráðherra nefndi um daginn. En á að vísa því yfir á sveitarfélögin? Hvernig ætlum við að gera þessa hluti? Þegar menn og konur setja svona frá sér verður að fylgja því fjármagn. Þetta er æðsti stjórnmálamaður Íslands og hann hendir því svona fram: Gjaldfrjáls leikskóli. Farsældarfrumvarp, rosalega flott hugmynd. Hvar er hún? Hvar er þetta? Hérna er verið að búa til úrræði sem geta skipt máli, en hvar eru þau? Svo kemur fólk og segir við sveitarstjórnarmenn og -konur? Af hverju er ekki leikskólinn frá eins árs aldri? Af hverju er hann ekki orðinn gjaldfrjáls? Þetta gildi líka um NPA. Af hverju er ekki verið að veita börnunum okkar NPA-samning? Þau eiga rétt á því samkvæmt lögum. Ég veit alveg að NPA-samningar eru dýrir, þeir geta kostað frá einhverjum milljónum upp í tugi milljóna. En það er bara það sem við þurfum að takast á við sem samfélag. Maður er svo hissa yfir því hvernig pólitíkusar tala og lofa upp í ermina á sér og svo eiga aðrir að bjarga því.

Varðandi það sem hv. þingmaður segir um vinnulöggjöfina og við erum sammála um, þá hefur okkur tekist að ná ákveðnum réttindum í gegnum áratuga kjarabaráttu. Einu sinni var unnið sólarhringum saman, myrkranna á milli og um helgar en nú erum við komin með vinnutímaákvæði sem gerir það að verkum að ef fólk fer út fyrir það þá er það bara ólöglegt. (Forseti hringir.) En nú á að fara að gefa afslátt af því, rétt eins og hv. þingmaður sagði: Þetta verður kannski ódýrara (Forseti hringir.) því að það eru ekki nógu margir á vakt.