152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[19:01]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, ég held við séum bara mjög sammála um þetta. Það er alveg ótrúlegt hvað margir stjórnmálamenn virðast geta gefið endalaus loforð um hitt og þetta, sér í lagi þegar einhver annar ætlar að borga það. Það væri sagt eitthvað við okkur í stjórnarandstöðunni ef við gætum bara gefið endalaus loforð og sagt: Hæstv. forsætisráðherra borgar þetta. Eða: Hæstv. fjármálaráðherra borgar það. Viljið þið eiga hlut í Íslandsbanka. Já, já, við skulum gefa, en hann borgar, ekki ég. Þetta gengur náttúrlega bara ekki og það er nauðsynlegt að hér sé alltaf tryggt að það sé til fjármagn fyrir því sem verið er að gefa loforð um, hvort sem það er notendastýrð, persónuleg aðstoð, geðheilbrigði, sálfræðiþjónusta. Það er voðalega fallegt að lofa þessu öllu en það er eitt að lofa, sem er það að segja: Já, við skulum gera þetta. Það sem mér finnst enn verra er að svíkja og það er það sem hefur verið gert þegar kemur að NPA-samningum. Fólki voru gefnar falskar vonir um að nú væri betri tíð fram undan og þau ættu frelsi fyrir höndum. En hvað gerðist? Æ, nei, þá var mikilvægara að fá fleiri ráðherra.