aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Af því að ég er nú tiltölulega nýr á þingi og hef oft leitað í skjóðu hv. þm. Björns Levís um vitneskju og upplýsingar þá hafði ég vonast til þess að hann gæti frætt mig um af hverju fyrirkomulagið er svona. En hann sagði það eiginlega í lokin að hann vissi það ekkert frekar en ég af hverju þetta væri svona, þannig að eitthvað er hér í gangi varðandi fjárheimildir sem er ofar okkar skilningi, alla vega okkar hv. þingmanns. Við skiljum þetta ekki alveg. Það sem ég á svolítið erfitt með að eiga við er að fjárlög eru lög en fjárhagsáætlanir sveitarfélaga eru ekki lög. Það er stór munur á þessu. Ríkið getur sagt: Nei, þetta er ekki í fjárlögum. Peningurinn er búinn. Við settum bara í þetta það sem við ætluðum að eyða í þetta og þess vegna verður ekki meira gert. En það geta sveitarfélögin ekki gert. Sveitarfélög verða að gera svo vel að axla þær skyldur sem á þau eru lagðar, reka skóla þó að sveitarfélögin séu orðin skítblönk, reka leikskóla þó að ekki séu til peningar fyrir því, vera með kennara í vinnu og halda þessu öllu gangandi. En einhverra hluta vegna virðist ríkisvaldið getað hagað sér með öðrum hætti. Ég á bara erfitt með að ná utan um þetta og ég held að ég vilji fá frekari umræðu við hv. þingmann um þetta, að verið er að umgangast fjárheimildir á sitthvorn mátann og ég átta mig ekki á því hvers vegna sú heimild er til staðar að gera það.