152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[19:21]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Nei, þrátt fyrir aðeins meiri reynslu, ekki mikið, bara svona einu kjörtímabili — maður er sífellt að læra meira hérna. Ég er í rauninni tiltölulega nýbúinn að púsla þessu saman, m.a. út af máli Viðreisnar um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu og NPA-þjónustuna líka, að sjá það gerast fyrir framan mann að ráðherrar, fagráðherrar, sem bera ábyrgð — hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra ber ábyrgð á þessum lögum, ráðherraábyrgð meira að segja, hann prívat og persónulega í rauninni sem ráðherra. Það er ekki svokallað fjölskipað stjórnvald hérna á Íslandi þar sem allir ráðherrarnir taka sameiginlega ábyrgð á öllu þessu hávær. Það er einn ráðherra hérna sem ber ábyrgð á þessum lögum en einhvern veginn ekki því að fjármagna þau lög, að segja: Til að geta framkvæmt þessi lög sem Alþingi setti á mig að framkvæma þá þarf svona mikinn pening. Og ráðherra þarf að koma til þingsins og segja: Ég þarf 100 milljónir í þetta, og útskýra af hverju þegar við spyrjum. En nei, það virkar ekki þannig. Hann fer til fjármálaráðherra, sem ber enga ábyrgð á þessum lögum, og fjármálaráðherra segir: Nei, þú færð bara 80. Mér er alveg sama hvernig þú reddar því, þú verður bara að framkvæma þessi lög fyrir 80 milljónir. En svo í lögum um atvinnuleysisbætur þá skiptir það engu máli. Þá er það bara u.þ.b.: Hérna færðu 50 milljarða fyrir það, gjörðu svo vel, og ef það fer fram yfir þá bara ræddum við því seinna. — Þetta er svo skrýtið.