aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Við erum að ræða hér um aðbúnað og hollustuhætti af því að okkur langar að gera svo vel fyrir þá sem þarna eiga í hlut. Þetta er hópur sem þarf á þjónustu að halda sem er nauðsynleg og það er verið að henda þessu frá Heródesi til Pílatusar varðandi þjónustu. En ég á erfitt með að sætta mig við að verið sé að gefa afslátt af þeim áunna rétti sem orðið hefur til í gegnum tíðina og við vitum að það er ekki í fyrsta skipti sem verið er að þjónusta fatlað fólk. Það er búið að gera það í áraraðir eftir þeim leikreglum sem verið hafa til staðar. Við erum núna að reyna að koma í framkvæmd einhverju sem kallað er betri vinnutími. Það er vinnutímastytting inni í því af því að talið er að það sé eðlilegt að fólk minnki við sig vinnuna undir miklu álagi, sérstaklega utan dagvinnutíma, og það þurfi að koma til móts við þá hópa.
Þarna er verið að fara í öfuga átt að mínu mati. Það er verið að leggja óþarfa byrði, finnst mér, á hópa sem eru í tiltölulega erfiðu starfi. Mér finnst að frekar en að skella á þennan hóp auknu álagi þá eigi að gera hið gagnstæða, að reyna þá frekar að fjölga vöktum innan sólarhringsins en að gera það, eins og hér var nefnt, á 48 tímum. Þá færðu hugsanlega 14 tíma í hvíld í staðinn fyrir að samkvæmt venjulegu vaktavinnufyrirkomulagi eða venjulegri vinnutímatilskipun ættirðu rétt á því að eiga 22 tíma, 11 tíma hvíld á sólarhring. Er ekki hv. þingmaður sammála mér um að verið sé að ganga á svig við það sem áunnist hefur?