152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[19:26]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Jú, nákvæmlega. Og meira að segja á þessari sjö tíma hvíld þá mega vera tvær truflanir. Ég veit ekki, kannski lengir truflunin síðan hvíldina í annan endann. En þessi samfellda sjö tíma hvíld verður þá ekki samfelld af því að það má trufla hana tvisvar sinnum. Þetta er einmitt mjög áhugavert því að við í þinginu erum að samþykkja lög sem veita fólki ákveðin réttindi; samfélagsleg réttindi, mannréttindi og ýmiss konar þjónustu sem fólk hefur tilkall til. En þrátt fyrir allan velvilja og vilja til að gera vel þá eru þau réttindi skert í gegnum fjárlög. Þá er bara sagt: Nei, við ætlum ekki að fjármagna þessi réttindi. Og þá erum við einhvern veginn óbeint að taka þá ákvörðun hér í þinginu, finnst mér, þegar við erum að samþykkja fjárlög, að skerða réttindi vegna annarra laga sem við höfum samþykkt. Ég segi óbeint af því að við sjáum yfirleitt ekki hvert fjármagnið dreifist sem er verið að samþykkja. Segjum að það séu 50 milljarðar í eitthvert málefnasvið, við sjáum oft ekki hvernig þeir dreifast á einstaka lagabálka á málefnasviði ráðherra innan þess málefnasviðs. Þá sjáum við ekki að þessi lagabálkur kostar 100 milljónir en það er bara verið að fjármagna hann fyrir 80, sem þýðir réttindaskerðing eða að það eru einhverjar útskýringar á því, t.d. að við erum búin að ná betri hagkvæmni með stafrænni þjónustu eða eitthvað svoleiðis sem minnkar kostnaðinn, sem er bara frábært, æðislegt. En við fáum ekki að vita það þegar við greiðum atkvæði um fjárheimildir í fjárlögum hvar við skerðum réttindi með minni fjárheimild en þarf, sérstaklega í þeim lögum þar sem er ákveðið að þegar fjárheimildin er búin er bara hætt að veita réttindin.