152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[19:42]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það eru ýmislegt sem ég myndi vilja ræða við hv. þingmann um varðandi það sem hann fór yfir hér. Hann nefndi m.a. forgangsröðun og velferðarpólitík. Einhvern veginn finnst mér nánast allir stjórnmálaflokkar breytast í krata svona rétt fyrir kosningar. Allir eru farnir að lofa hinu og þessu sem er hægt að flokka undir einhvern kratisma, af því að við viljum öll, held ég, gera vel, eða alla vega efast ég ekki um að það sé í okkur að reyna að standa hvert með öðru. En einhverra hluta vegna virðist þetta alltaf að vera klúðrast. Mér finnst þetta vera gott dæmi, þetta eru sláandi tölur, að sjá 172 samningum lofuðum, en þeir eru bara 90. Við erum þá að tala um 82 samninga sem ekki hafa orðið að veruleika. Það eru auðvitað bara ótrúlega tölur, að sjá að ekki sé verið að gera betur í þessum málaflokki en raunin er. Þetta eru sorglegar sögur sem hv. þingmaður segir okkur hér varðandi ungt fólk sem dvelur á hjúkrunarheimilum og kemst ekki heim til sín, kemst ekki í þá aðstöðu sem það á í raun og veru rétt á sem þegnar í þessu samfélagi. Af því að við erum að tala um forgangsröðun langar mig aðeins að biðja hv. þingmann um að tjá sig aðeins frekar um það: Hvernig eigum við að koma því í gegn að það sé virt sem áður hefur verið samþykkt?